Fara á efnissvæði
Vettvangur
Vettvangur

Af hverju vefhönnun - hvað værir þú að gera ef þú hefðir valið annað fag?

Ég var í Listaháskólanum rétt fyrir síðustu aldamót og sat þar námskeið í Netlist. Þar byrjaði ég að fikta í HTML og Photoshop og fann strax sterklega að þetta var eitthvað sem mig langaði að gera. 25 árum seinna er ég enn að fikta nema nú fæ ég myndarlega borgað fyrir það. 

Ef ég væri ekki vefhönnuður væri ég líklega sjálfstætt starfandi stöðumælavörður eða að bjóða upp á námskeið í skapandi logsuðu fyrir ungabörn.

Hvers konar lausnir finnst þér skemmtilegast að hanna? Í hverju ertu bestur?

Ég er fyrst og fremst viðmótshönnuður. Eitt sinn fékk ég sent fimbulstórt og stjarnfræðilega flókið Excel skjal og var beðinn um hanna úr því viðmót fyrir siglingaáætlun. Þá var gaman í vinnunni.

Verkefni sem þú ert sértaklega stoltur af?

Gerir þú upp á milli barnanna þinna?

Hvað gerir Vettvang að öðruvísi vinnustað en þar sem þú hefur starfað áður?

Það traust sem starfsmönnum er sýnt, frjálsræðið og afslappað vinnuumhverfi.

Áttu fyndna staðreynd um þig?

Flest það fyndnasta mér tengt þolir ekki birtingu en ég get upplýst að ég var einu sinni í dómnefnd fyrir Eurovision.

Hvernig myndir þú lýsa starfi þínu fyrir 5 ára barni?

Ég er í tölvunni allan daginn að leika mér og hlusta á tónlist á meðan.